Sunday, November 26, 2006

Jæja þá er einn helginn í viðbót liðin hjá.

Síðasta vika gekk frekar hratt fyrir sig. Verkefna vinna og ekkert annað en verkefna vinna. En já erum svona næstum búinn með verkefnið reikna með því að það klárist núna á mánudaginn þannig að þá er næsta vika frekar létt.
Fór á fimleika æfingu í síðustu viku, já fimleika æfingu meira að segja tvær, fór í fyrra skiptið með Erlu til að taka myndir fyrir vefsíðuna sem hópurinn minn var vinna að, og vitið menn þetta leit út fyrir að vera sjúklega gaman. Tveir tímar að leika sér á trampolínum, þannig að ég ákvað að skella mér bara með Erlu á næstu æfingu og taka þá þátt. Og jú ég mætti á æfinguna, leist nú ekki alveg nógu vel á þetta fyrst til að byrja með, frekar skrítinn upp hitun enn samt gaman af þessu. Svo var byrjað að æfa, og kallinum var skellt í byrjunar hópinn, en ekki hvað. Byrjum þar á því að læra að standa á höndum. Og vitið menn það tókst bara nokkuð vel, stelpan sem var að þjálfa mig sagði alla vega að ég væri að standa mig bara nokkuð vel :) En já svo var farið að prófa eitthvað erfiðar og allt gekk bara furðu vel fyrir sig. Svo í endann á æfingunni fengum við smá tíma til að leika okkur og þá byrjaði gamannið. Fór á frekar stórt trampolín sem maður gat svo stokkið af út í gryfju sem var full af svömpum, allger snilld. Skellti mér í tvöfalt heljar stök á fyrstu æfingunni, og var alveg húkt á því að stökkva af þessu fór nokkur stök í við bót, sem endaði náttlega bara á einn veg, krakaði eitthvað í bakinu og fékk olbogan í lærið, þannig að mar svona haltraði út af æfingunni. En mar ætlar samt sem áður að skella sér á aðra æfingu á morgun þannig að það er bara sjá hvort mar komi heill út eða ekki.

En Já helginn var ágætt, höfðum smá party hérna hjá mér á föstudaginn. Nokkuð vel heppnað bara held ég, alla vega allir góðir á því þegar skellt var í bæinn. Fórum þar á einn klúp og svo skellti ég mér bara heim. Þegar ég kom heim var skellt “smá” pasta í pott og kokkað pasta með osti og pastasósu. Glæsilegt bara.
Svo á laugardaginn var skellt sér til Kat um kvöldið en stelpan sem leigir með henni var að flytja út þannig að það var kveðju party fyrir hana þar. Það var nokkuð gaman þar og ekki skemmdi fyrir að þær stelpuna skelltu sér til þýska lands á föstudeiginum og keyptu ódýran bjór, sem var svo deilt út í partyinu. Þannig að allt í allt var þetta ágætis helgi bara.

En já núna eru menn að flytja kominn tími á að maður pakki öllu dótinu og komi sér á nýja staðinn. Ætlum að skella okkur á laugardaginn í það að flytja allt dótið upp eftir.
En jæja köllum þetta nóg í bili.

Kv.Högni







Sunday, November 19, 2006

Það er sunnudags morgun og allir sem sofa nema þú og ég.

Jæja þá er mar kominn snemma á fætur, íbúðin lyktar af sterku kaffi sem mar er að sötra í rólegheitum eftir morgunn matinn. Dagurinn í dag fer sennilega að mestu leiti í það að skrifa xhtml og setja upp vefsíðuna sem við erum að hana fyrir Worshop 2 verkefnið sem við erum að vinna að núna. En það gengur út á að velja heima síðu og endurbætta hana. Síðan sem hópurinn valdi er www.asg.dk og eins og sjá má á henni má bætta hana. Sían er allgerlega flött og alls ekki juserfriendly en plannið er að gera hann betur út lítandi og betur setta upp fyrir notendur þess vefs. Markaðshópurinn sem við erum að stefna að bætta síðuna fyrir eru nú þegar skráðir notendur og notendur sem koma inn á hana í fyrsta skipti. Hún verður því sett þannig upp að þegar þú kemur inn á hana áttu að geta séð strax hvað síðan er um auk þess að þú átt að hafa þann valmöguleika á að geta skráð þig strax inn í kerfið og fengið þannig upp þína notenda síðu með tilheyrandi upplesingum. En til þess að gera það þyrftum við að kunna að setja upp php server en erum ekki alveg kominn það langt í programing tungumálinu þannig að við gerum bara demo af því hvernig það myndi virka. Svo er bara að sjá hvort þetta verði ekki nógu vel gert hjá okkur til að fá 10 fyrir verkefnið ;)
Svo á mánudaginn á að skella sér á æfingu hjá þeim hjá ASG enn Erla ætlaði að vera svo góð að taka mig með á einna æfingu þar sem hún er að æfa hjá þeim, og þar kem ég til með að taka myndir fyrir heima síðuna svo við höfum eitthvað til að vinna grafíkina með.

Vikan sem leið allt of hratt. Já síðasta vika leið allt of hratt. Áttum frí á miðvikudaginn í skólanum þannig að þá var notið þess að sofa aðeins lengur og svo fór restin af þeim deigi bara í að gera undirbúning fyrir þá vinnu sem við þurfum að hefjast handa á í næstu viku. Við vorum næstum eingöngu í tímum í dreamweaver í síðustu viku sem var mjög næs þar sem ég hef unnið á það forrit soltið áður og var því ekki ókunnugur því sem var að ske, og hélt reyndar að ég þyrfti lítið á þeim tímum að halda, en svo kom það í ljós að kennarinn var að kenna á það forrit á allt anna hátt en ég hafði lært og það kom mér soltið á óvart að á fyrstu tímunum lærði ég alveg slatta af nýjum leiðum og kóðum til að vinna með í Dreamweaver. : ) “bara gott mál”
Svo kom hinn heilagi föstudagur þar sem vaninn er að hittast á skólabarnum og fá sér salthentur og 2-3 bjóra eftir erfiða viku, og þessi var eingin undantekning þó að vanalegi hópurinn sem hittist þarna hafi verið aðeins öðruvísi. En já þar var settið og drukkið 2-3 bjóra og spilað á spil, mikið hlegið og skemmt sér. En eftir það var haldið heim til Leós þar sem var skellt góðri tónlist á og menn fengu sér 1-2 bjóra í við bót og svo var haldið í bæinn. Í bænum fórum við á 2-3 staði og skemmtum okkur konung lega. Cat og 2-3 vinnir hennar hittu og svo á einum staðnum og kláruðu kvöldið með okkur. En svona um 3 leitið fannst mér vera kominn tími til að koma mér heim þannig að ég rölti á businn og tók 3 businn heim og þá byrjar sama vesenið og vanalega. Enn einhvern veginn tekst mér aldrei að halda mér vakandi í þessum bus alla leiðina heim þannig að ég sofnaði eins og vanalega á leiðinni og vaknaði svo ekki fyrr en rétt áður enn hann var kominn á enda stöðina og skaust út þar, (þá kominn langt langt frá því þar sem ég á heima). Enn jæja hvað eiga menn að gera, ég hringdi á taxa enn innistæðan mín var frekar í lægri kantinum þannig að áður enn mér tókst að koma manninum í símanum í skilning um það hvar ég væri drapst á símtalinu, þannig að nú var bara eitt í stöðunni og það var að rölta heim. Sem betur fer hef ég komið í þennan bæ nokkrum sinnum þannig að ég rölti mér að lestar stöðinni til að tékka á hvenær næsta lest kæmi og það var ekki fyrr en kl 7 eða 8 og menn voru ekki í stuði til að sitja í 4 tíma og bíða eftir lest, þannig að ég tók mig bara til og rölti með fram lestar teinunum áleiðis heim(best að ég takki það fram ég rölti með fram teinunum ekki á þeim, bara ef fólk færi að vera með áhyggjur ;) ). Enn já það rölt tók mig ekki nema 2 tíma þannig að þegar menn lokksins voru komnir heim til sín svona upp úr 5 leitinu voru þeir bæði dauðsvangir og allgerlega búnir á því eftir rösklegt labb, þá var hent í tvær góðar samlokkur og mjólkur glass og svo var skriðið upp í rúm, og sofnað áður en 2 mín voru liðnar. Svona eru föstudagar alltaf eitthvað nýtt sem skeður. Laugardaginn var svo vaknað frekar snemma miða við á hvaða tíma var farinn að sofa og menn voru nú alls ekki með mikla þynnku í sér þar sem það steinn rann af manni við göngu túrinn daginn áður ( kannski að mar fari að stunda það bara labba heim ). En Laugardagurinn fór svona að mestu í það að hanga bara í tölvunni, skoða síður, gera myndir, hana grafík og svona hitt og þetta smá atriðið sem ég nennti að gera. Kvöldið var svo tekið með trompi, það var hent í tvær þvotta vélar, poppað opnað 1 bjór með poppinu og horft á imbann og háttað snemma. Alveg dæmigert laugardags kvöld hjá mér ;)
Og nú á sunnudeigi er maður vaknaður og farinn að skrifa blog sem er búið að taka mig einn kaffi bolla að skrifa. Núna er ætlunin að taka svona 1 kl tíma í smá vef ráp og skoða hinnar og þessar síður sem maður langar að læra að setja upp, og svo verður hafist handa við lærdóm, ekki mikill lestur í dag en nóg af kóðun. Svo seinni partinn var ég að spá í að plata einhvern með mér í bæinn og setjast á eins og eitt kaffi hús og slappa af, jafn vel ef mar hefur mannskapinn í það að finna sér sólbaðstofu og skella sér í ljós, svo mar verði nú ekki skotinn á fær þegar maður kem heim um jólin. Enn kallinn er jafn hvítur og vetrarhamur Rjúpunnar sem verður étinn um jólin.

Vikan framundan lofar góðu ekkert nema verkefna vinna í skólanum, en ætlum að vinna að verkefninu frá kl 9- 14 eða 15 í skólanum á hverjum degi og svo það sem þarf að gera heima verður heimaverkefni hvers dags en það kemur í ljós hversu mikið það þarf að gera af því. Svo er verið að plana eitthvað samkvæmi á næstu helgi enn það er svo langt í það að mar getur ekki séð það fyrir sér, þar sem þessa viku veriður maður að drukkna í vinnu.

Mig langar einnig að óska honum bróður mínum til hamingju með 8 sætið í flugsunds keppninni sem hann tók þátt í, í gær. Og vona að honum gangi vel í dag, í þeirri keppni sem hann er að fara taka þátt í. Enn hann er nú þegar kominn í hóp 10 bestu flugsunds manna landsins, eftir eins árs hvíld frá sundinu og ég veit að áður en næsta ár er liðir verður kappinn kominn í hóp top 3. Þú stendur þig í þessu litli bróðir tekur svo rækjuna frá Danmörku og pakkar henni saman þegar hún kemur heim um jólin :D ekki spurning með það.

“Svo er það Páll Janus sem synti sig inn í úrslit í 50m flugsundi og stórbætti tímann sinn þegar hann synti á 00:27:68, Ísafjarðarmet 00:27:31, og var unun að horfa á hann synda sig inn í úrslit á 7. besta tíma. Þar er hann búinn að sanna sig inn í hóp allra bestu flugsundsmanna landsins.”


Tekkið af http://swim.is/vestri/ enn ég ætla líka að taka undir aðra grein sem er skrifuð þar, og finnst það hreint skammarlekt að eftir öll þessi ár séu þau enn þá að æfa í 16 metra laug.
Hvernig væri nú að bærinn færi að sjá það eða orða það kannski öðruvísi þar sem þeir eru löngu búnir að sjá það, hvernig væri að bærinn færi að standa við það að koma með nýja eða endurbætta gömlu sundlaugina fyrir vestan!! Það er löngu kominn tími á það.

Enn jæja enda þetta svona í bili, henti nokkrum myndum hérna inn sem ég hef verið að leika mér við að fikta með. Endilega klikkið á þær til að sjá þær stærri.

Kveð í bili þar til næsta sunnudag :P






Sunday, November 12, 2006

Góður á því.

Jæja þá er helgin liðinn og ekkert sem maður ætti að tala um sem hefur skeð.
Skellti mér til Leós á föstudaginn, kíktum í eitthvað party sem var í gangi þar uppfrá, alveg um og yfir 200 mans sem mættu á svæðið og þetta var svona frekar troðið. Vorum ekki alveg að fíla að standa svona eins og sardínur í dós þannig að við áhváðum að skella okkur bara á barinn sem er þarna uppfrá, og það var fínt, lítið af fólki en góður stemmari sáttum þar í 1-2 bjóra og svo var haldið heim.
Gær kveldið var einnig nokkuð gott skelltum okkur í party til Cat, sáttum þar í góða stund, og svo var farið á einhvern bara þar nálagt og sullað smá en þá var ég líka búinn á því og skellti mér heim.

Vikan framundan lofar góður, erum að byrja núna að fara í meiri heimsíðugerð, en það er kominn tími á að mar fá að gera eitthvað, sitji bara ekki í endalausum fyrir lestrum. Þannig að núna verður tekið vel á því, þarf að eiða næstu helgi í að taka myndir og hreinsvinna þær fyrir netið en það er bara flot mál. Búinn að panta mér far heim um jólin og farinn að hlakka til að komast heim í faðm fjölskildunar og vera innan um fjöllin. Mar verður nú að segja að það er smá heimþrá í manni þrátt fyrir að hér sé gott að vera og búa.

Skellit einni mynd hérna inn bara svona svo fólk gleymi því nú ekki hvernig maður lítur út, en hafði eitthvað lítið að gera í morgun þannig að ég smellt af nokkrum myndum af mér sjálfum án þess að vera mikið að spá í því, en núna fer ég líka að skella mér í það að taka fleiri myndir. Alveg búinn að vera allt of slappur við það síðan ég kom hingað út, þannig að ég ætla reina að breyt því.

Kveð í bili. En vill skila þökkum til Gísla fyrir póstkortið, kom skemmtilega á óvart.

Tuesday, November 07, 2006

Bloggað.

Jæja menn eru bara duglegir við að blogga núna.

Svo ég byrji frá því sem fyrr var horfið. Laugardagurinn sem leið var fín, svolítið þunnur um morgunninn, en það lagaðist svo þegar leið á daginn. Dagurinn fór svona að mestu í það að sitja og lesa. Kvöldið var svo önnur saga, fékk sms frá Fannari að það væri samkoma heima hjá Erlu um kvöldið og ég ætti endilega að setja stefnuna á það. Og þó menn hafi nú ekki verið í miklum partý gír var kýlt á það. Sáttum svo þar í góðan tíma með tónlist og húmor til skemmtunar, drukkum og sulluðum smá, en eftir einn góðan leik var svo haldið í bæinn, og skelltum okkur á bar sem er aðeins frá læknum, kósý og fínstaður. Sátum þar til lokkunar og héldum svo á Britswaters og sáttum hann einnig af okkur. Eftir það var svo haldið heim til Erlu í annað sinn, nokkrum sálum fleiri en fyrr um hvöldið. Þar var svo settið eitthvað fram eftir nóttini og enduðum flest á að krassa þar bara. Sunnudags morgunninn var svo hörmung, vaknaði um 10-11 leitið og ákvað að halda heim á leið. Þegar heim var komið svaf ég svo til að verða 2-3 og svo var fengið sér spæld egg og læti. Eyddi svo deginum bara í rólegheitum.

Enn núna er það bara skólinn sem mar er að einblína á, fyrir lestara og undirbúningur fyrir komandi verkefni eru í fullum gangi. Er að vinna í hóp með nokkrum í bekknum. Montu Thean og Henrietu, held að þetta munni bara ganga vel, þær ætla að sjá um analæsa síðuna en við strákannir um hönnun og vef virkni. Ætlum að re-designa einhverja danska fimmleika síðu, og kallinn kemur til með að skella sér á nokkrar æfingar til að taka myndir fyrir síðuna á komandi vikum.

En held að þetta sé nú alveg gott í bili er að fara skella mér í smá action skript og kem til með að sína það sem ég er að fara hana í næstu viku, þangað til set ég krækju hérna Klukka inn á klukku sem ég var að hana í gær, ekki nógu vel gerð en nennti ekki að laga grafíkina, skriprið virkar eins og það á að virka, og einna mynd sem ég var að dunda mér við að skella saman. Endilega benda fólki á að klikka á myndinnar til að sjá þér stæri.

Og já svo er það sjónvarps stjarna dagsins. Kíkið á 40 mín
Mamma
http://veftivi.visir.is/veftivi/main.do?treeId=2002&progId=siste

Kv.Högni


Saturday, November 04, 2006

Jæja ég hef ákveðið að leggja niður 123.is/Hogni síðuna of færa mig hingað til að byrja með.

Enn það fyrsta sem mig langar að nefna hérna er stafsetninginn mín en hún er eins og flestir sem þekkja mig vita ekki upp á marga fiska. Ég ætla að leggja mig fram við það að láta tölvuna lesa yfir það sem ég skrifa en efa að ég nenni því í hvert eitt og einasta skipti og reikna fastlega með því að þrátt fyrir það verði þetta allt morandi í stafsetninga villum.

Enn að lífinu sjálfu, í gær var gefið út jólabjórinn þannig að þegar skólinn var búinn var haldið á skóla barinn til að smakka á þessum merkilega jólaöli. Við sáttum þar í góðum gír frá 1 til 5 og var svona mismunandi hvernig ástandið var á mönnum þegar þeir yfir gáfu barinn. Enn eftir það var haldið niður á Vinstugu þar sem menn settust niður í smá stund og fengu sér einn léttan í við bót. Eftir að ég hafði skolað niður einum þar hélt ég svo niður að dómskirkjunni en þar var búið að setja upp eittstiki skíða brekku, og voru þar nokkrir hressir Dannir að sína listir sínar bæði á brettum og skíðum. Ekkert sem maður hefði geta hrópað húrra fyrir en samt fínasta skemmtun. Kynntist einum góðum gaur þar sem býr hérna í Aarhusi, og ætlar að sína mér helstu staðinni til að skate á svo mar geti farið að mynda eitthvað skemmtilegt.

En dagurinn í dag er alveg óákveðinn gætti verið að mar skelli sér bara í leikinn með strákunum á eftir ef ekkert annað er í stöðunni. En maður helgarinnar er alveg tvímæla laust Leó, fyrir góða sögu núna í morgun sárið.
Þú ferð bara varlega í framtíðinni kallinn, og lætur það vera að syngja um götur bæjarins.